Sigga Kling fjallar í bókinni á sinn einstaka hátt um mátt orðsins og mikilvægi jákvæðs hugarfars.? Hún lýsir því hvernig orð okkar, hugsanir og viðbrögð við fjölmörgum aðstæðum sem upp koma í lífinu geta skipt sköpum. Lesendum eru kenndar aðferðir við að breyta lífi sínu og fjölga gleði- og hamingjustundunum.